Íslenski boltinn

Milos á leið til Svíþjóðar

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Milos Milojevic er á leiðinni til Svíþjóðar þar sem hann byrjar í nýju starfi 1. janúar næstkomandi.

Milos ræddi við Ríkharð Óskar Guðnason um framtíðina og viðskilnaðinn við Breiðablik í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Milos tók við Breiðabliki þegar nokkrar vikur voru liðnar af tímabilinu og aðeins þrjú lið í Pepsi-deildinni náðu betri árangri en Blikar það sem eftir lifði tímabils. Þrátt fyrir það ákvað Breiðablik að finna sér nýjan þjálfara fyrir næsta tímabil.

„Það má ekki misskilja það. Það var allt í góðu milli mín og stjórnarinnar. Ég fékk algjöran vinnufrið og það var enginn að bögga mig. Það má ekki koma þannig út að ég hafi ekki fengið stuðning. En þeir voru ekki að missa sig yfir því að halda mér áfram,“ sagði Milos.

Undir stjórn Milosar vann Breiðablik átta af 18 deildarleikjum sínum.vísir/anton
„Ég er ekki ósáttur. Þeir hugsa bara hvað er best fyrir liðið og félagið. Það er ákvörðun sem þeir standa við og ég virði það.“

Milos hætti óvænt sem þjálfari Víkings R. í byrjun tímabils og tók nokkrum dögum síðar við Breiðabliki. En sér hann eftir þeirri ákvörðun?

„Alls ekki. Þetta var krefjandi verkefni en að mörgu leyti mjög skemmtilegt. Ég kynntist góðu fólki og góðum leikmönnum. Ég sé ekki eftir neinu,“ sagði Milos.

Eins og áður sagði verður Svíþjóð næsti viðkomustaður Milosar. Hann getur hins vegar ekki greint frá því á þessari stundu hvaða félagi hann muni starfa hjá.

Fréttina í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.


Tengdar fréttir

Milos hættir sem þjálfari Breiðabliks

Milos Milojevic verður ekki áfram þjálfari Breiðabliks í Pepsi-deild karla í fótbolta en þetta tilkynnti félagið á heimasíðu sinni í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×