Fótbolti

Iniesta mun klára ferilinn hjá Barcelona

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Iniesta hefur átt magnaðan feril.
Iniesta hefur átt magnaðan feril. vísir/getty
Andres Iniesta er búinn að skrifa undir nýjan samning við Barcelona sem félagið segir að sé út lífstíðina.

Þessi magnaði miðjumaður mun því klára sinn feril hjá Börsungum sem ætti að gleðja alla stuðningsmenn félagsins.

Iniesta hefur spilað 639 leiki fyrir félagið og er næstleikjahæstur í sögu Barcelona. Í þessum leikjum hefur hann skorað 55 mörk en lagt upp miklu fleiri.

Fyrsti leikur Iniesta með Barcelona var þann 29. október árið 2002. Iniesta er 33 ára gamall og gekk í raðir Barcelona er hann var aðeins tólf ára gamall.

Hann hefur unnið flesta titla í sögu Barcelona eða 30 talsins. Iniesta deilir því meti með Lionel Messi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×