Formúla 1

Lewis Hamilton á ráspól í Japan

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Lewis Hamilton var í sérflokki í dag.
Lewis Hamilton var í sérflokki í dag. Vísir/Getty
Lewis Hamilton á Mercedes var fljótastur í tímatökunni fyrir japanska kappaksturinn í Formúlu 1 og Valtteri Bottas á Mercedes varð annar, Sebastian Vettel á Ferrari varð þriðji.

Tímatakan í Japan er afar mikilvæg, einungis tvisvar frá árinu 1991 hefur ökumaður sem ekki ræsti á frestu rásröð náð að vinna keppnina.

Fyrsta lota

Valtteri Bottas sýndi rallý hæfileika sína þegar hann bjargaði sér og bílnum frá brúarstólpa í fyrstu tilraun Finnans til að setja tíma.

Romain Grosjean gerði mistök og hafnaði á varnarvegg undir lok lotunnar. Það þurfti að stöðva tímatökuna og lotunni lauk þar með. Haas bíll franska ökumannsins var nokkuð skemmdur eftir höggið. Grosjean missti stjórn á bílnum, fór út á gras á um 200 km/klst og þá var eiginlega ekki spurning hvernig leikar myndu enda.

Þeir sem féllu úr leik í fyrstu lotu voru, auk Grosjean, Pierre Gasly á Toro Rosso,Lance Stroll á Williams og Sauber ökumennirnir. Stroll lenti í umferð á brautinni í báðum sínum tilraunum.

Sebastian Vettel á Ferrari mun ræsa annar vegna refsingar Valtteri Bottas vegna gírkassaskiptinga.Vísir/Getty
Önnur lota

Hamilton byrjaði aðra lotuna á því að setja brautarmet á Suzuka brautinni. Raikkonen kom út á mjúkum dekkjum, sem og Bottas en þeir ætluðu greinilega að ræsa keppnina á harðari dekkjum en aðrir fremstu ökumenn. Menn verða að ræsa af stað í keppnina á morgun á þeim dekkjum sem þeir setja hraðasta tímann á í annarri lotu, að því gefnu að þeir komist í þá þriðju.

Þeir sem féllu út í annarri umferð voru Renault ökumennirnir, Stoffel Vandoorne á Mclaren, Kevin Magnussen á Haas og Carlos Sainz á Toro Rosso. Alonso mun taka út refsingu á morgun og færast aftur á ráslínu vegna nýrra vélaríhluta sem hann þarf að taka um borð. Vandoorne mun því ræsa 10. á morgun.

Þriðja lota

Hamilton setti aftur brautarmet í upphafi þriðju lotu. Næstur honum komst Vettel á Ferrari. Bottas, liðsfélagi Hamilton var 0,641 sekúndu á eftir Hamilton eftir fyrri tilraunina í þriðju lotu.

Hamilton bætti svo í tryggði sér ráspól. Bottas nappaði öðru sætinu af Vettel í seinni tilrauninni og Raikkonen var ekki upp á sitt besta og var sjötti.


Tengdar fréttir

Sebastian Vettel mun sleppa við refsingu í Japan

Sebastian Vettel virðist ætla að sleppa við refsingu fyrir nýjan gírkassa í japanska kappakstrinum í Formúlu 1 um komandi helgi. Ferrari hefur staðfest að sá sem hann notaði í Malasíu sé í lagi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×