Innlent

Sigurður Ingi leiðir lista Framsóknar í Suðurkjördæmi

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Frá landsfundi Framsóknarflokksins á síðasta ári þegar Siguður Ingi var kjörinn formaður flokksins.
Frá landsfundi Framsóknarflokksins á síðasta ári þegar Siguður Ingi var kjörinn formaður flokksins. Vísir/Ernir
Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, mun leiða lista flokksins í Suðurkjördæmi í komandi alþingiskosningum. Þetta var samþykkt á fundi í félagsheimilinu Hvoli í dag.

Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingmaður flokksins, vermir annað sæti listans og er Ásgerður K. Gylfadóttir, bæjarfulltrúi í sveitarfélaginu Hornafirði, í því þriðja.

„Glæsilegur listi sem ég hef mikla trú á. Ég myndi segja að reynsla og þor væri það sem einkenndi okkar lista. Við erum tilbúin að takast á við verkefnin framundan og þær áskoranir sem bíða okkar. Verkefnin eru ærin.” sagði Sigurður Ingi Jóhannsson í tilkynningu.

Listi Framsóknarflokksins Suðurkjördæmi:

1. Sigurður Ingi Jóhannsson, alþingismaður og frv. forsætisráðherra

2. Silja Dögg Gunnarsdóttir, alþingismaður

3. Ásgerður K. Gylfadóttir, bæjarfulltrúi og hjúkrunarstjóri

4. Jóhann Friðrik Friðriksson, lýðheilsufræðingur

5. Sæbjörg Erlingsdóttir, sálfræðinemi

6. Inga Jara Jónsdóttir, nemi

7. Pálmi Sævar Þórðarson, bifvélavirki

8. Sandra Rán Ásgrímsdóttir, verkfræðingur

9. Lára Skæringsdóttir, grunnskólakennari

10. Herdís Þórðardóttir, innkaupastjóri

11. Stefán Geirsson, bóndi

12. Jón H. Sigurðsson, lögreglufulltrúi

13. Hrönn Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri

14. Ármann Friðriksson, nemi

15. Valgeir Ómar Jónsson, sagnfræðingur

16. Sigrún Þórarinsdóttir, bóndi

17. Jóhannes Gissurarson, bóndi

18. Jóngeir H. Hlinason, bæjarfulltrúi og hagfræðingur

19. Haraldur Einarsson, frv. alþingismaður

20. Páll Jóhann Pálsson, frv. alþingismaður




Fleiri fréttir

Sjá meira


×