Körfubolti

Martin og Haukur góðir í sigurleikjum

Martin átti skínandi leik í franska boltanum í kvöld.
Martin átti skínandi leik í franska boltanum í kvöld. vísir/fiba
Martin Hermannsson átti afar góðan leik fyrir Chalons-Reims í frönsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld, en Reims vann sex stiga sigur, 103-97 á Chalon/Saône.

Chalons-Reims var 60-58 yfir í hálfleik, en afar mikið var skorað. Þeir lögðu grunninn að sigrinum með ellefa stiga sigri í þriðja leikhluta og unnu að lokum, 103-97.

Martin spilaði í 32 minútur og skoraði sextán stig. Hann tók átta fráköst og gaf fjórar stoðsendingar. Glæsilegur leikur hjá piltinum, en Reims er með tvo sigra í fyrstu fjórum leikjunum.

Haukur Helgi Pálsson átti einnig fínan leik fyrir Cholet í tveggja stiga sigri liðsins gegn Dijon, 75-73, í sömu deild í kvöld.

Haukur skoraði 13 stig á þeim 19 mínútum sem hann spilaði, en einnig tók hann eitt frákast og gaf tvær stoðsendingar. Þetta var fyrsti sigur Cholet á tímabilinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×