Innlent

Friðland Þjórsárvera fjórfaldað að stærð

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Þjórsárver sunnan Hofsjökuls hafa lengi verið þrætuepli vegna hugmynda um Norðlingaölduveitu.
Þjórsárver sunnan Hofsjökuls hafa lengi verið þrætuepli vegna hugmynda um Norðlingaölduveitu. Vísir/Vilhelm
Friðlandið í Þjórsárverum verður stækkað í dag. Verður það gert með því að umhverfis- og auðlindaráðherra undirritar auglýsingu þess efnis. Hið nýja friðland verður tæpir 1.563 ferkílómetrar að stærð. Þetta herma heimildir Fréttablaðsins.

Tillaga að mörkum og friðlýsingarskilmálum stækkaðs friðlands Þjórsárvera var auglýst til kynningar í upphafi júlímánaðar. Frestur til að skila inn athugasemdum rann út 3. október síðastliðinn. Um var að ræða skilmála og afmörkun sem komist var að samkomulagi um við sveitarfélög á svæðinu vorið 2013. Í júní sama ár stóð til að þáverandi umhverfisráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson, undirritaði auglýsinguna en hann hætti við eftir að bréf barst frá forstjóra Landsvirkjunar um að farið yrði með málið fyrir dómstóla yrði af undirrituninni.

„Þetta er barátta sem staðið hefur yfir í 45 ár. Þetta byrjaði í Gnúpverjahreppi árið 1972 með fundi sem faðir minn og Birgir Sigurðsson stóðu fyrir,“ segir Sigþrúður Jónsdóttir, formaður Vina Þjórsárvera.

„Síðasta uppþotið var árið 2001 þegar keyra átti Norðlingaölduveitu í gegn. Þetta hefur verið hark á köflum, sérstaklega fyrstu árin. Við þurftum að kæra hitt og þetta og gera alls kyns kúnstir,“ segir Sigþrúður.

„Þetta hefur verið baráttumál í áratugi og er löngu, löngu, löngu tímabært enda er svæðið eitt af krúnudjásnum Íslands,“ segir Snæbjörn Guðmundsson, formaður Landverndar. „Allt hið einstaka við hálendi Íslands er þarna samankomið. Undirritunin er vonandi lokapunkturinn í að vernda svæðið algjörlega og losna við allar virkjanahugmyndir.“

Þjórsárver voru fyrst friðlýst árið 1981. Núverandi friðland er tæpir 358 ferkílómetrar. Friðlandið mun því rúmlega fjórfaldast að flatarmáli.


Tengdar fréttir

Friðlýsing Þjórsárvera lögð í salt

Umhverfisráðherra hefur frestað stækkun friðlands í Þjórsárverum. Landsvirkjun sendi yfirvöldum skorinort bréf og áskildi sér rétt til málsóknar ef skrifað yrði undir friðlýsingarskilmála. Forstjóri Umhverfisstofnunar játar því að þungar ásakanir felist í bréfi Landsvirkjunar.

Umhverfisráðherra vill ekki brjóta lög

Sigurður Ingi Jóhannsson, umhverfisráðherra frestaði undirritun laga um stækkun friðlands Þjórsárvera á síðustu stundu en Landsvirkjun segir að málsmeðferðin hafi verið ólögmæt. Ráðherrann segist ekki vilja brjóta lög, eins og Svandís Svavarsdóttir, fyrirrennari hans, hafi verið dæmd fyrir í embættistíð sinni, og ætlar að skoða málið betur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×