Lífið

Skráning í Jólastjörnuna hafin

Stefán Árni Pálsson skrifar
Tónleikar Björgvins fara fram í Eldborg þann 10.des.
Tónleikar Björgvins fara fram í Eldborg þann 10.des.
Skráning í Jólastjörnuna 2017 hófst í morgun. Í ár er Jólastjarnan haldin í sjötta skiptið en hér fá ungir söngsnillingar tækifæri á að syngja með Jólagestum í Hörpu í söngkeppni fyrir 14 ára og yngri. 

Til að taka þátt skulu þátttakendur senda myndband af sér að syngja á skráningarsíðu Jólastjörnunnar á Vísi. Þátttakendur syngja lag að eigin vali, með sínu nefi og senda hlekk á myndbandsupptöku af söngnum á skráningarsíðu Vísis.

12 bestu söngvararnir að mati dómnefndar verða boðaðir í prufur og eftir þær mun sigurvegarinn koma í ljós. Stöð 2 gerir sérstaka þáttaröð um allt ferlið og verða þrír þættir sýndir í seinni hluta nóvember. Í fyrstu tveimur koma keppendurnir tólf í prufur og í þeim þriðja er sigurvegarinn afhjúpaður.

Sigurvegarinn mun syngja með Jólagestum Björgvins, 10. desember í Eldborg. Guðrún Lilja Guðbjartsdóttir vann síðustu Jólastjörnu og stóð hún sig einstaklega vel. Hálfdán Helgi Matthíasson bar sigur úr býtum í Jólastjörnunni 2015 en hann var valin úr hópi um tvö hundruð barna sem sóttu um með því að senda myndbönd inn á Vísi.

Jólastjarnan 2014 var Gunnar Hrafn Kristjánsson, 11 ára drengur, nemandi í Salaskóla í Kópavogi. Jólastjarnan 2013 var Eik Haraldsdóttir, fædd og uppalin á Akureyri. Stella Kaldalóns sigraði keppnina árið 2012, sem kom henni ánægjulega á óvart en skólasystkini hennar voru aldrei í vafa um að hún myndi vinna. 

Hinn 14 ára gamli Aron Hannes Emilsson frá Grundarfirði bar á sigur úr býtum í fyrstu keppninni og kom fram þann 3. desember 2011.

Hægt er að skrá sig til leiks á síðunni visir.is/jolastjarnan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×