Formúla 1

Hamilton á ráspól og Vettel aftastur

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Lewis Hamilton á Mercedes var fljótastur í dag.
Lewis Hamilton á Mercedes var fljótastur í dag. Vísir/Getty
Lewis Hamilton á Mercedes var fljótastur í tímatökunni fyrir malasíska kappaksturinn í Formúlu 1 sem fram fer um helgina. Sebastian Vettel lenti í bilunum og setti ekki tíma.

Skipta þurfti um vél í Ferrari bíl Sebastian Vettel á milli þriðju æfingar og tímatökunnar. Rafmangstruflanir höfðu verið í bílnum á þriðju æfingunni.

Kimi Raikkonen háði hetjulega baráttu við Hamilton en uppskar ekki ráspól. Hann var 0,045 sekúndum á eftir Hamilton.

Fyrsta lota

Með nýju vélina um borð hélt Vettel af stað í tímatökuna. Eitthvað virtist hafa farið úrskeiðis við vélarskiptin því bíllinn var til vandræða hjá Vettel sem gat ekki sett tíma í tímatökunni. Skelfileg tíðindi fyrir Vettel og titilvonir hans að þurfa að ræsa aftastur á morgun. Hann er 28 stigum á eftir Lewis Hamilton í keppni ökumanna.

Hamilton, var fljótastur í fyrstu lotunni á Mercedes og Max Verstappen á Red Bull annar.

Þeir sem sátu eftir í fyrstu umferð, auk Vettel voru Sauber ökumennirnir og Haas ökumennirnir.

Sebastian Vettel gerði lítið annað en að sitja í bílskúrnum í dag.Vísir/getty
Önnur lota

Valtteri Bottas á Mercedes setti besta tímann í lotunni, rétt undir lokin. Þangað til hafði Kimi Raikkonen á Ferrari verið fljótastur.

Stoffel Vandoorne og Fernando Alonso komu McLaren bílum sínum í í þriðju lotu tímatökunnar.

Toro Rosso ökumennirnir, Williams ökumennirnir og Jolyon Palmer á Renault féllu úr leik í annarri lotu.

Þriðja lota

Eftir fyrstu tilraunina var Hamilton fljótastur með Raikkonen skammt á eftir. Í lokatilrauninni var staðan sú sama en munurinn var töluvert minni. Hamilton bætti ekki tíma sinn en það gerði Raikkonen, það bara dugði ekki til.


Tengdar fréttir

Abiteboul: Renault ætlar að tryggja sér fimmta sæti

Cyril Aboteboul, liðsstjóri Formúlu 1 liðs Renault segir að framleiðandinn ætli að gera allt til að tryggja að báðir bílar liðsins klári allar sex keppninar sem eru eftir á tímabilinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×