Formúla 1

Hamilton: Skemmtilega óvænt að ná ráspól

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Max Verstappen, Lewis Hamilton og Kimi Raikkonen voru þrír fljótustu menn dagsins.
Max Verstappen, Lewis Hamilton og Kimi Raikkonen voru þrír fljótustu menn dagsins. Vísir/Getty
Lewis Hamilton á Mercedes náði sínum fjórða ráspól í röð í dag. Hann náði einnig sínu 70. ráspól á ferlinum. Hver sagði hvað eftir tímatökuna?

„Þetta var gaman, það var mikil óvissa hjá liðinu um hvað við myndum geta gert í dag. Það er skemmtilega óvænt að ná ráspól í dag. Það verður hörð barátta í ræsingunni á morgun og ég veit að Red Bull voru sérstaklega góðir á löngu köflunum á æfingum í gær og í dag. Keppnin verður spennandi,“ sagði Hamilton eftir tímatökuna.

„Þetta var í lagi en svekkjandi að ná þessu ekki því þetta var svo nálægt. Það er gott að finna að bíllinn er góður. Vonandi kemst ég lengra en 100 metra á morgun og þá sjáum við til hvað gerist. Það er hægt að græða hér á góðri ræsingu. Bíllinn verður góður í keppninni,“ sagði Kimi Raikkonen sem var annar.

„Það er alltaf gaman að keyra hér og áhorfendur eru mjög ástríðufullir. Það er gaman að ná þriðja sæti í tímatökunni hér á afmælisdaginn minn,“ sagði Max Verstappen sem varð þriðji á Red Bull í dag, hann varð tvítugur í dag.

Maurizio Arrivabene var allt annað en sáttur eftir tímatökuna.Vísir/Getty
„Við verðum að hrista þetta af okkur og keppa á morgun. Það virðist vera bilun í tengingunni á milli vélarinnar túrbínunnar í bíl Sebastian,“ sagði Maurizio Arrivabene, liðsstjóri Ferrari.

„Við náðum framförum í dag. Það var bara eitthvað að í þriðju lotunni í dag. Allir aðrir gátu gefið í en ég sat eftir,“ sagði Valtteri Bottas sem varð fimmti í dag.

„Ég gaf Max hálfan tíunda úr sekúndu í afmælisgjöf. Ferrari bílarnir eru þeir einu sem hafa verið stöðugir í löngum köflum á æfingum. Hitastigið í dekkjunum skiptir öllu máli, það getur muna fimm gráðum í dekkjahita og það skilar kannski hálfri sekúndu á hring,“ sagði Daniel Ricciardo sem varð fjórði í dag.

„Það er alltaf gott að enda á undan Fernando í tímatöku. Sjöunda sæti var það mesta sem hægt var að ætlast til í dag. Við höfum reyndar ekki átt jafn góðar keppnir og tímatökur, svo ég veit ekki alveg við hverju á að búast á morgun,“ sagði Stoffel Vandoorne, sem varð sjöundi í tímatökunni í dag.


Tengdar fréttir

Hamilton á ráspól og Vettel aftastur

Lewis Hamilton á Mercedes var fljótastur í tímatökunni fyrir malasíska kappaksturinn í Formúlu 1 sem fram fer um helgina. Sebastian Vettel lenti í bilunum og setti ekki tíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×