Fótbolti

Varane dreymir um að spila út ferilinn með Real Madrid

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Raphaël Varane líður vel hjá Real Madrid
Raphaël Varane líður vel hjá Real Madrid vísir/getty
Franski varnarmaðurinn Raphael Varane skrifaði nýverið undir nýjan samning við spænska stórveldið Real Madrid og gildir samningurinn til ársins 2022.

Að honum loknum verður Varane 29 ára gamall en hans draumur er að spila út ferilinn í spænsku höfuðborginni.

„Það væri stórkostlegt ef ég gæti spilað hérna þangað til ég hætti. Ég hef átt frábær ár hérna og með því að spila hjá þessu félagi út ferilinn væri draumur að rætast hjá mér. Ég legg hart að mér að hverjum degi til að bæta mig svo ég geti haldið áfram að klæðast þessari treyju,“ segir Varane.

Varane var ekki orðinn tvítugur þegar hann lék sinn fyrsta A-landsleik fyrir Frakka og nú eru landsleikirnir orðnir 37 hjá þessum 24 ára gamla miðverði sem var keyptur til Real Madrid árið 2011, þá átján ára gamall.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×