Fótbolti

Bæði kynin saman á liðsmynd

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Kvenna og karlalið Barcelona 2017-18
Kvenna og karlalið Barcelona 2017-18 Mynd/Barcelona
Leikmenn Barcelona sátu fyrir framan myndavélar í árlegri liðsmyndatöku eins og gengur og gerist. Það vakti hins vegar athygli að leikmenn karla- og kvennaliða félagsins sátu saman á mynd.

„Sameiginleg mynd er táknræn fyrir skuldbindingu félagsins til bæði íþrótta bæði karla og kvenna,“ segir í frétt á heimasíðu félagsins.

Kvennalið Barcelona hefur unnið alla þrjá leiki sína í deildinni á tímabilinu.

Karlaliðið hefur einnig unnið alla leiki sína í deildinni til þessa, en það hefur spilað sjö leiki. Liðið er einnig taplaust í Meistaradeildinni.

Barcelona leikur við Las Palmas á morgun og er leikurinn í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 3 klukkan 14:10


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×