Viðskipti innlent

Söluferli Lyfju skýrist á næstu vikum

Kristinn Ingi Jónsson skrifar
Stefnt er að því að slíta Lindarhvoli á fyrri hluta næsta árs.
Stefnt er að því að slíta Lindarhvoli á fyrri hluta næsta árs. Vísir/Anton

Stjórn Lindarhvols, eignarhaldsfélags sem heldur utan um stöðugleikaeignir sem voru framseldar til ríkisins, mun á næstu vikum ákveða hvort aftur verði boðað til opins söluferlis á lyfjakeðjunni Lyfju. Sem kunnugt er ógilti Samkeppniseftirlitið í sumar kaup smásölurisans Haga á lyfjakeðjunni, sem er að fullu í eigu ríkisins.



Í greinargerð um starfsemi Lindarhvols, sem fjármála- og efnahagsráðuneytið sendi Alþingi í gær, kemur fram að stjórn félagsins velti nú fyrir sér næstu skrefum í málinu. Hagar áttu langhæsta tilboðið í Lyfju, en það hljóðaði upp á 6,7 milljarða króna.



Fram kemur í greinargerðinni að það sé mat Lindarhvols að ekki sé heppilegt að setja önnur óskráð hlutabréf, sem eru í umsýslu félagsins, í söluferli að svo stöddu. Ástæðan sé sú að slík sala „muni ekki verða til þess að hámarka verðmæti viðkomandi hlutabréfa, meðal annars vegna eðli eignanna og annarra þátta sem snúa sérstaklega að einstökum eignum í þessum eignaflokki“.



Á meðal óskráðra hlutabréfaeigna félagsins er tíu prósenta hlutur í fjárfestingafélaginu Eyri Invest sem er jafnframt stærsti einstaki hluthafi Marels með 25,9 prósenta hlut. Auk þess á Lindarhvoll hlut í fagfjárfestingasjóðnum Auði I, DOHOP og Norðurturninum við Smáralind, svo eitthvað sé nefnt.



Í greinargerðinni er auk þess tekið fram að áfram verði stefnt að því að ljúka við úrvinnslu og sölu eigna félagsins eins fljótt og auðið er. Ekki sé óvarlegt að áætla að unnt verði að slíta starfsemi Lindarhvols á fyrri hluta næsta árs.



Fréttin birtist fyrst í Markaðnum, fylgiriti Fréttablaðsins um viðskipti og efnahagsmál. 





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×