Lífið

Cowell féll fyrir Shanaya: Þú ert allt sem við erum að leita að

Stefán Árni Pálsson skrifar
Shanaya Atkinson-Jones sló í gegn.
Shanaya Atkinson-Jones sló í gegn.
Hin 19 ára Shanaya Atkinson-Jones mætti í áheyrnarprufu í bresku útgáfuna af X-Factor á dögunum og sló heldur betur í gegn.

Hún flutti sína eigin útgáfu af laginu Say Something með Great Big World og Christina Aguilera og gerði það gjörsamlega óaðfinnanlega.

Shanaya mætti á svæðið með foreldrum sínum sem voru heldur betur stolt af dóttur sinni. Foreldrar hennar ættleiddu Shanaya þegar hún var þriggja ára og fram að því hafði hún átt mjög erfitt líf.

„Allt sem við höfðum vonast til að finna þetta árið stendur beint fyrir framan mig,“ sagði Simon Cowell, einn af dómurum þáttanna, eftir að Shanaya hafði lokið sér af.

Hér að neðan má sjá þennan ótrúlega flutning.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×