Innlent

Sigríður Andersen víkur úr sæti þar sem Ástráður sækir um stöðu héraðsdómara

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Ástráður Haraldsson var einn fjögurra sem sérstök hæfisnefnd taldi að skipa ætti sæti í Landsrétti. Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra skipti Ástráði út ásamt þremur öðrum og skipaði fjóra aðra í þeirra stað.
Ástráður Haraldsson var einn fjögurra sem sérstök hæfisnefnd taldi að skipa ætti sæti í Landsrétti. Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra skipti Ástráði út ásamt þremur öðrum og skipaði fjóra aðra í þeirra stað. Vísir/Anton Brink
Dómsmálaráðuneytinu bárust 41 umsókn um átta stöður héraðsdómara sem voru auglýstar lausar til umsóknar 1. september. Umsóknarfresturinn rann út þann 18. september og voru nöfn umsækjanda um dómaraembættin birt á vefsíðu Stjórnarráðsins

Á meðal umsækjanda var Ástráður Haraldsson hæstarréttarlögmaður. Dómsmálaráðherra hefur því ákveðið að víkja sæti í málinu þar sem hún telur að fyrir hendi séu aðstæður sem séu til þess fallnar að umsækjendur dragi óhlutdrægni hennar i efa. Hefur hún óskað eftir því við forsætisráðherra að öðrum ráðherra í ríkisstjórninni verði falin meðferð málsins.

Föstudaginn 15. September síðastliðinn var birt niðurstaða í Landsdómsmálinu. Niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur var að ef dómsmálaráðherra taldi annmarka á áliti dómnefndar um umsækjendur um embætti Landsréttardómara hefði átt að óska eftir nýju áliti nefndarinnar. Ástráður Haraldsson var einn fjögurra sem sérstök hæfisnefnd taldi að skipa ætti sæti í Landsrétti. Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra skipti Ástráði út ásamt þremur öðrum og skipaði fjóra aðra í þeirra stað.

Í dómnum var bent á að talið sé brot gegn „dómstólalögum og reglum stjórnsýsluréttar að hafa ekki borið saman reynslu og hæfni dómaraefna. Rökstuðningur hafi verið „óljós“ og heildstæður samanburður á umsækjendum hafi ekki farið fram. Ekki verði því fullyrt að ráðherra hafi valið 15 hæfustu einstaklingana í Landsrétt.“

Sjá einnig: Sigríður Andersen braut lög



Sigríður sagðist fagna niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur en hún væri hugsi yfir því að þessi dómur væri áfellisdómur yfir störfum hæfisnefndarinnar.

 „Það fyrsta sem blasir við í þessu máli er að öllum kröfum stefnanda hefur verið hafnað. Aðalkröfunni var vísað frá sem var um ógildingu skipunarinnar. Ríkið er sýknað bæði af skaðabótakröfunni og miskakröfunni,“ sagði Sigríður við Vísi um niðurstöðuna.



Umsækjendur um dómaraembættin átta eru:



Anna Kristín Úlfarsdóttir - yfirlögfræðingur hjá landbúnaðarsýslu norska ríkisins

Anna Mjöll Karlsdóttir - yfirlögfræðingur hjá Fjármálaeftirlitinu

Arnaldur Hjartarson - aðstoðarmaður dómara við EFTA-dómstólinn

Arnar Þór Jónsson - lektor við lagadeild Háskólans í Reykjavík

Auður Björg Jónsdóttir - hæstaréttarlögmaður

Ásbjörn Jónasson - aðstoðarmaður héraðsdómara

Ásgeir Jónsson - hæstaréttarlögmaður

Ásgerður Ragnarsdóttir - hæstaréttarlögmaður

Ástráður Haraldsson - hæstaréttarlögmaður

Bergþóra Ingólfsdóttir - hæstaréttarlögmaður

Bjarnveig Eiríksdóttir - héraðsdómslögmaður

Brynjólfur Hjartarson - lögfræðingur í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu

Daði Kristjánsson - saksóknari hjá embætti ríkissaksóknara

Guðfinnur Stefánsson - aðstoðarmaður héraðsdómara

Guðmundína Ragnarsdóttir - héraðsdómslögmaður

Guðmundur Örn Guðmundsson - héraðsdómslögmaður

Gyða Bergsdóttir - aðstoðarmaður héraðsdómara

Hákon Þorsteinsson - aðstoðarmaður héraðsdómara

Helgi Sigurðsson - hæstaréttarlögmaður

Hrannar Hafberg - ráðgjafi Fiskistofu

Indriði Þorkelsson - hæstaréttarlögmaður

Ingiríður Lúðvíksdóttir - settur héraðsdómari

Jón Þór Ólason - héraðsdómslögmaður og lektor við Háskóla Íslands

Jónas Jóhannsson - hæstaréttarlögmaður

Magnús Guðlaugsson - hæstaréttarlögmaður

Nanna Magnadóttir - forstöðumaður úrskurðarnefndar um umhverfis-og auðlindamál

Ólafur Freyr Frímannsson - héraðsdómslögmaður

Ólafur Karl Eyjólfsson - héraðsdómslögmaður

Pétur Dam Leifsson - dósent við lagadeild Háskóla Íslands

Ragnheiður E. Þorsteinssdóttir - héraðsdómslögmaður og lektor við Háskólann á Akureyri

Sigurður Jónsson - hæstaréttarlögmaður

Sonja María Hreiðarsdóttir - lögmaður hjá embætti borgarlögmanns

Sólveig Ingadóttir - aðstoðarmaður héraðsdómara

Stefán Erlendsson - héraðsdómslögmaður

Stefanía Guðrún Sæmundsdóttir - saksóknari hjá embætti ríkissaksóknara

Tómas Hrafn Sveinsson - hæstaréttarlögmaður

Unnsteinn Örn Elvarsson - héraðsdómslögmaður

Valborg Steingrímsdóttir - aðstoðarmaður héraðsdómara

Þór Hauksson Reykdal - forstöðumaður hjá Vinnumálastofnun

Þórhildur Líndal - aðstoðarmaður héraðsdómara

Þórir Örn Árnason - héraðsdómslögmaður


Tengdar fréttir

Sigríður gefur kost á sér í komandi kosningum

Sigríður Andersen dómsmálaráðherra hyggst gefa kost á sér til áframhaldandi þingsetu í komandi kosningum. Þetta sagði hún í samtali við fréttastofu Stöðvar 2 í kvöld. Hún telur sig ekki hafa brugðist trúnaðarskyldum með því að greina forsætisráðherra frá því að faðir hans væri einn meðmælenda dæmds kynferðisbrotamanns vegna uppreistar æru.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×