Lífið

Kórar Íslands: Kalmanskórinn

Stefán Árni Pálsson skrifar
Kalmanskórinn kemur fram á sunnudagskvöldið.
Kalmanskórinn kemur fram á sunnudagskvöldið.
Kórar Íslands er nýr skemmtiþáttur sem verður á dagskrá Stöðvar 2 í vetur en Friðrik Dór Jónsson, einn ástsælasti söngvari landsins, verður kynnir þáttanna. Dómnefndina skipa tónlistarfólkið Kristjana Stefánsdóttir, Ari Bragi Kárason, og Bryndís Jakobsdóttir. Fyrsti þátturinn fer í loftið á sunnudaginn og koma þar fram fjórir kórar og keppa um tvö laus sæti áfram í undanúrslitin.

Hér að neðan ætlum við að fá að kynnast Kalmanskórnum sem kemur fram í fyrsta þætti á sunnudagskvöldið í beinni útsendingu á Stöð 2 klukkan 19:10.

Kalmanskórinn

Kalmanskórinn er nafnið. Þetta er blandaður kór. Kórfélagar eru öll félagar í Kór Akraneskirkju en þessi hópur hefur verið í sérverkefnum af og til. M.a. sér hluti þeirra um útfararsöng við Akraneskirkju.

Kórinn telur um 16-20 manns, allt eftir verkefnum. Jafnvel fleiri. Kórinn tók þátt í Þjóðlagahátíðinni á Siglufirði í byrjun júlí þar sem flutt voru íslensk ættjarðarlög. Efnisval kórsins er fjölbreytt, allt frá ættjarðarlögum til kirkju- og dægurlagatónlistar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×