Fótbolti

Benzema á Bernabeu til 2021

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Karim Benzema er einn af markahæstu leikmönnum í sögu Real Madrid.
Karim Benzema er einn af markahæstu leikmönnum í sögu Real Madrid. vísir/getty
Karim Benzema hefur skrifað undir nýjan fjögurra ára samning við Real Madrid.

Franski framherjinn hefur verið í herbúðum Real Madrid frá árinu 2009.

Benzema hefur skorað 181 mark í 371 leik með Real Madrid. Hann er áttundi markahæsti leikmaður í sögu félagsins.

Á tíma sínum hjá Real Madrid hefur Benzema tvívegis orðið Spánarmeistari, tvisvar sinnum bikarmeistari og unnið Meistaradeild Evrópu í þrígang.

Benzema er fjórði lykilmaðurinn sem hefur framlengt samning sinn við Real Madrid á síðustu dögum. Marcelo, Isco og Dani Carvajal skrifuðu allir undir fimm ára samning við félagið.


Tengdar fréttir

Ronaldo loksins laus úr banninu

Cristiano Ronaldo snýr aftur í lið Real Madrid þegar það tekur á móti Real Betis í 5. umferð spænsku úrvalsdeildarinnar í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×