Lífið

Allt í lagi að koma á Hyundai i30 á fyrsta deit

Benedikt Bóas skrifar
Hyundai i30 er hannaður í Evrópu og er með fimm ára ábyrgð. Vélin lumar á heilum 140 hrossum undir húddinu sem ætti að skila deitinu heim á skikkanlegum tíma. Ódýrasti bíllinn fannst á 450 þúsund. NordicPhotos/Getty
Hyundai i30 er hannaður í Evrópu og er með fimm ára ábyrgð. Vélin lumar á heilum 140 hrossum undir húddinu sem ætti að skila deitinu heim á skikkanlegum tíma. Ódýrasti bíllinn fannst á 450 þúsund. NordicPhotos/Getty
Síðustu 10 daga hefur hver Hyundai i30 bíllinn rúllað út úr umboðinu í Garðabæ í hendur nýrra eigenda. Hyundai i30 kemur fyrir í laginu B.O.B.A., með þeim Jóa Pé og Króla, sem er eitt vinsælasta lag landsins þessa stundina.

„Síðustu tíu daga hefur verið að seljast meira af þessum bíl. Hvort það er laginu að þakka eða ekki veit ég ekki. Hann er reyndar mjög góður,“ segir Kristinn Páll Teitsson, sölumaður hjá Hyundai umboðinu.

Jasmín Dúfa Pitt á stjörnuleik í myndbandinu. Myndir/Skjáskot
Ódýrasti bíllinn kostar rúmar 450 þúsund krónur á bílasölur.is en ódýrasta útgáfan af nýjum bíl kostar um þrjár milljónir. Dýrasta útgáfan er á um 4,2 milljónir.

Lagið hefur fengið gríðarlega góðar viðtökur og þeir Jóhannes Damian Patreksson og Kristinn Óli Haraldsson hafa skotist upp á stjörnuhimininn á miklum hraða. Horft hefur verið á lagið um 350 þúsund sinnum á YouTube og spilað oftar en einu sinni og oftar en tvisvar á tónlistarveitunni Spotify.

 

Króli er ánægður með sinn i30 Hyundai í myndbandinu B.O.B.A.
Nýlega kom út átta laga plata með þeim félögum sem heitir Gerviglingur og hefur verið að fá góðar viðtökur þó vinsældir B.O.B.A. lagsins slái öll met. „Þetta eru búnir að vera mjög góðir dagar varðandi i30 bílinn en hvort það er laginu að þakka er stór spurning. Þetta er bíll með góða aksturseiginleika, góða vél og er vel útbúinn með góðar græjur. Það er allt í lagi að koma á i30 á fyrsta deit,“ segir Kristinn.  

B.O.B.A./Viðlag

B.O.B.A. það er bomba

Fýla ekki góða píu, fýla bara vonda

Fyrsta deiti, púlla upp í i30 Hyundai

Slæmar stelpur gera mig svo rousey eins og Ronda






Fleiri fréttir

Sjá meira


×