Handbolti

Löwen með heimasigur í Meistaradeildinni

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Alexander á ferðinni með Löwen.
Alexander á ferðinni með Löwen. vísir/getty
Alexander Petersson skoraði eitt mark fyrir Rhein-Neckar Löwen í kvöld er liðið vann fjögurra marka sigur, 31-27, á Wisla Plock í Meistaradeildinni.

Alexander skoraði fyrsta mark leiksins en síðan ekki söguna meir en hann klúðraði næstu fjórum skotum sínum. Guðjón Valur Sigurðsson gat ekki leikið með Löwen vegna meiðsla.

Rafael Baena og Jerry Tollbring voru markahæstir í liði Löwen en báðir skoruðu sex mörk í leiknum.

Löwen gerði jafntefli við Barcelona í fyrsta leik sínum í riðlakeppninni og er því komið með þrjú stig núna. Plock er án stiga en liðið tapaði gegn Vardar í fyrsta leik.

Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson dæmdu leikinn og komust vel frá sínu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×