Fótbolti

Hammarby vann Íslendingaslaginn

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Birkir Már Sævarsson.
Birkir Már Sævarsson. vísir/ernir
Birkir Már Sævarsson og Arnór Smárason voru í byrjunarliði Hammarby í kvöld er liðið vann sterkan 2-1 sigur á IFK Göteborg í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Elías Már Ómarsson spilaði síðustu tólf mínútur leiksins fyrir Göteborg. Hammarby hoppaði upp fyrir Göteborg með sigrinum en bæði lið sigla lygnan sjó um miðja deild.

Höskuldur Gunnlaugsson og Tryggvi Hrafn Haraldsson voru báðir í byrjunarliði Halmstad sem gerði 1-1 jafntefli við Kalmar. Höskuldur lagði upp mark Halmstad í leiknum sem er enn í fallsæti.

Árni Vilhjálmsson var á bekknum hjá Jönköpings Södra sem lagði Sirius, 3-1. Árni spilaði síðustu níu mínútur leiksins. Jönköpings er í sætinu fyrir ofan fallsæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×