Lífið

Kórar Íslands: Bartónar

Stefán Árni Pálsson skrifar
Bartónar æfa alltaf saman á Kaffibarnum og taka stundum lagið fyrir áhugasama gesti eins og sjá má í myndbandinu hér fyrir neðan.
Bartónar æfa alltaf saman á Kaffibarnum og taka stundum lagið fyrir áhugasama gesti eins og sjá má í myndbandinu hér fyrir neðan.
Kórar Íslands er nýr skemmtiþáttur sem verður á dagskrá Stöðvar 2 í vetur en Friðrik Dór Jónsson, einn ástsælasti söngvari landsins, verður kynnir þáttanna. Dómnefndina skipa tónlistarfólkið Kristjana Stefánsdóttir, Ari Bragi Kárason, og Bryndís Jakobsdóttir. Fyrsti þátturinn fer í loftið á sunnudaginn og koma þar fram fjórir kórar og keppa um tvö laus sæti áfram í undanúrslitin.

Hér að neðan ætlum við að fá að kynnast kórnum Bartónum sem kemur fram í fyrsta þætti á sunnudagskvöldið í beinni útsendingu á Stöð 2 klukkan 19:10.

Bartónar

Bartónar - Kallakór Kaffibarsins var stofnaður í febrúar 2010 og hefur síðan blómstrað í söng- og menningarlífi borgarinnar. Kórinn hefur frá fyrsta degi starfað undir styrkri hönd Jóns Svavars Jósefssonar kórstjóra.

Fagmennska, glæsileiki og fáguð framkoma eru aðalsmerki kórsins. Kórinn hefur sungið á hinum ýmsu skemmtunum, lokuðum sem opnum frá fyrsta starfsári. Fljótlega sáu kórfélagar fram á að þetta væri eitthvað sem þeim hugnaðist vel að gera, hittast á barnum og syngja saman. Kórmönnum fjölgaði ört og margir þóttu hafa góða söngrödd.

Í upphafi voru kórmeðlimir aðeins í kringum 14 talsins en eru nú hátt í 40. Við það hefur áherslan á gæði söngsins orðið meiri og síðan þá hafa Bartónar vaxið og dafnað. Kórmeðlimir hittast á hverjum mánudegi á Kaffibarnum til þess að syngja saman.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×