Hlutabréfaverð í frjálsu falli vegna pólitískrar óvissu Hörður Ægisson skrifar 21. september 2017 10:58 Úrvalsvísitala Kauphallarinnar hefur lækkað um sjö prósent frá því að tilkynnt var um stjórnarslit síðastliðinn föstudag og hefur hún ekki verið lægri frá því í lok ágústmánaðar 2015.
Gengi hlutabréfa í Kauphöllinni hefur hríðfallið í umtalsverðum viðskiptum í morgun og hefur Úrvalsvísitalan lækkað um tæplega tvö prósent. Markaðsvirði skráðra félaga á hlutabréfamarkaði hefur þannig lækkað um nærri 60 milljarða frá því að ríkisstjórnin sprakk í lok síðuðustu viku. Verðbréfamiðlarar sem Vísir hefur rætt við segja lækkunina stafa af pólitískri óvissu og ótta fjárfesta um að niðurstaða boðaðra kosninga til Alþingis verði með þeim hætti að við taki ríkisstjórn með vinstri sinnaðar áherslur sem kunni að hafa neikvæð áhrif á eignamarkaði. Úrvalsvísitala Kauphallarinnar hefur lækkað um sjö prósent frá því að tilkynnt var um stjórnarslit síðastliðinn föstudag og hefur hún ekki verið lægri frá því í lok ágústmánaðar 2015. Hlutabréf allra skráðu félaganna í Kauphöllinni hefur lækkað í verði í morgun. Þannig hefur meðal annars gengi bréfa í Högum, Icelandair, TM, Sjóvá, Símanum og fasteignafélögunum Reginn og EIK í öllum tilfellum lækkað í verði um meira en þrjú prósent það sem af er degi. Úrvalsvísitala Kauphallarinnar hafði lækkað um liðlega 3,5 prósent þegar mest var í morgun en sú lækkun hefur að hluta til gengið til baka. Þegar þetta er skrifað stendur Úrvalsvísitalan í 1.591 stigum og hefur lækkað um 1,9 prósent frá því að markaðir opnuðu í morgun. Þá hefur ávöxtunarkrafa á ríkisskuldabréf hækkað nokkuð í viðskiptum á skuldabréfamarkaði í morgun. Nemur hækkunin um 8 til 10 punktum í helstu óverðtryggðu ríkisskuldabréfaflokkunum sem þýðir að fjárfestar gera kröfu um aukið verðbólguálag.
Mest lesið Hvað er opið um páskana? Neytendur Páskaeggin frá Nóa Síríus vinsælust Neytendur Stjörnugrís sektaður fyrir íslenskan fána Neytendur Forstjóri Boeing lætur af störfum fyrir árslok Viðskipti erlent Rússar flytja inn eldsneyti eftir drónaárásir Viðskipti erlent Tuttugu milljóna hámark sett á einstaklinga Viðskipti innlent Trump græddi milljarða dala í dag Viðskipti erlent Súkkulaði frá Nóa hækkar mest á meðan Freyja lækkar Neytendur Bónus, Extra og Heimkaup oftast með lægsta verðið á páskaeggjum Neytendur Hefð fyrir sumargjöf í Íslandsbanka Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tuttugu milljóna hámark sett á einstaklinga Lok, lok og læs hjá Gló Hefð fyrir sumargjöf í Íslandsbanka Hundrað þúsund kall á haus Ísland ekki nógu spennandi áfangastaður fyrir Ryanair Yfirmaður hjá Alvotech fékk 300 milljóna kaupauka Ráðinn nýr lögfræðingur hjá ÖBÍ Húsnæðisliðnum um að kenna en von á breytingum Fundar með Bankasýslunni í dag Bankasýslan þögul sem gröfin Festi vill sættast við Samkeppniseftirlitið Verðbólga eykst á ný Deildar meiningar um hvað sagt var í símtali Segir skilið við SVÞ eftir sextán ár í starfi Ætlar ekki að tjá sig fyrir aðalfund Landsbankans Skál flytur úr mathöllinni Fyrirhuguð löggjöf muni ekki laga leigumarkað í lamasessi Telja sig hafa gert nóg til að upplýsa Bankasýsluna Bankaráð Landsbankans svarar fyrir sig Opna nýja frjósemismiðstöð á haustmánuðum Fjárfestar líta í síauknum mæli til mikilvægis kynjajafnréttis Leiðinlegt með loðnuna en svona er þetta bara Pizzan reynir að eigna sér Megaviku Domino's Ráðinn framkvæmdastjóri úr hópi 27 umsækjenda Jón hættir sem stjórnarformaður Sýnar Eydís og Þorvaldur til Genís Setur 100 milljónir í að leiðrétta erlendan fréttaflutning um eldgosin Bein útsending: Orkuöryggi – Hverju getum við áorkað? Hitnar í fasteignamarkaði vegna íbúðakaupa Grindvíkinga Forsprakki verkefnisins „Stækkaðu framtíðina“ heimsótti Landakotsskóla Sjá meira