Fótbolti

Costa-flækjan leyst

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Diego Costa er kominn aftur til Atlético Madrid.
Diego Costa er kominn aftur til Atlético Madrid. vísir/getty
Diego Costa er genginn í raðir Atlético Madrid á nýjan leik. Madrídarliðið og Chelsea hafa komist að samkomulagi um kaup á framherjanum öfluga.

Mál Costa hafa verið í óvissu í allt sumar en hann hefur verið í hálfgerðri útlegð í Brasilíu.

Kaup Atlético á Costa gengu ekki í gegn fyrir lok félagaskiptagluggans um síðustu mánaðarmót. Það breytti ekki öllu enda fær Costa ekki að spila með Atlético fyrr en eftir áramót vegna félagaskiptabanns sem félagsins er í.

Talið er að Atlético borgi Chelsea 53 milljónir punda fyrir hinn 28 ára gamla Costa. Hann verður þá dýrasti leikmaður í sögu félagsins.

Costa hefur ekki spilað leik í tæpa 100 daga, eða síðan hann kom við sögu í leik Spánar og Makedóníu í undankeppni HM í júní.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×