Innlent

Segir niðurstöðu umboðsmanns Alþingis í samræmi við það sem hún hefur haldið fram

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Dómsmálaráðherra sat fyrir svörum þingmanna á fundi stjórnskipunar-og eftirlitsnefndar í vikunni.
Dómsmálaráðherra sat fyrir svörum þingmanna á fundi stjórnskipunar-og eftirlitsnefndar í vikunni. vísir/anton brink
Niðurstaða umboðsmanns Alþingis að ekki sé þörf á að rannsaka embættisfærslur Sigríðar Á. Andersen, dómsmálaráðherra, og Bjarna Benediktssonar, forsætisráðherra, í tengslum við það að Sigríður sagði Bjarna frá því að faðir hans væri á meðal umsagnaraðila á umsókn dæmds kynferðisbrotamanns um uppreist æru kemur Sigríði ekki á óvart.

„Þetta kemur ekki á óvart. Þetta er í samræmi við það sem ég hef haldið fram og eins og ég hef lýst málinu síðan ég kom upp, og hef ekkert dregið undan í þeim efnum. Það kemur mér heldur ekki á óvart að umboðsmaður Alþingis áttaði sig líka á því að fagráðherra á hverjum tíma verður að geta átt samtöl við forsætisráðherra,“ segir Sigríður.

„Það horfir auðvitað öðruvísi við öðrum fagráðherrum“

Aðspurð hvort það hefði farið betur á því þá að segja öðrum ráðherrum í ríkisstjórninni frá þessum tengslum segir Sigríður að hún telji að sér hafi ekki verið það heimilt. Björt framtíð sleit ríkisstjórnarsamstarfinu við Sjálfstæðisflokk og Viðreisn vegna þess sem flokkurinn telur vera trúnaðarbrest þar sem hvorki Sigríður né Bjarni greindu samráðherrum í ríkisstjórn frá aðkomu föður Bjarna.

„Ég tel að mér hefði hins vegar ekki verið það heimilt en mér skilst að það hafi líka verið rætt á fundi nefndarinnar. Það horfir auðvitað öðruvísi við öðrum fagráðherrum. Það hefði ekki verið málefnalegt að upplýsa umhverfisráðherra, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra eða heilbrigðisráðherra um þessi mál. Það var ekkert tilefni til þess og tel í hæsta máta undarlegt ef ég hefði gert það,“ segir Sigríður.

Segir engan ráðherra Bjartrar framtíðar eða Viðreisnar hafa haft samband við hana

Aðspurð hvað henni finnist um að ríkisstjórnarslitin í ljósi niðurstöðu umboðsmanns Alþingis ítrekar Sigríður það sem hún hefur áður sagt; að henni finnist það algjörlega ábyrgðarlaust að sprengja ríkisstjórn út af þessu máli.

Sigríður segist geta skilið að þessi mál öld valdi miklu tilfinningaumróti hjá fólki og geti skapað geðshræringu í umræðunni.

„Ég hef fullan skilning á því og ég er sjálf ekki tilfinningalaus í þessum efnum. En þegar fólki hefur verið trúað fyrir og tekið að sér trúnaðarstörf sem eru æðstu stöður ríkisins þá verður að gera þá kröfu til fólks að það skilji þarna á milli og geti sýnt af sér ábyrga hegðun í öllum sínum ákvarðanatökum. Að þær séu yfirvegaðar og í samræmi við tilefnið. Enn þann dag í dag hefur þetta fólk ekki einu sinni komið að máli við mig, ráðherrar Bjartrar framtíðar og Viðreisnar, ekki svo mikið sem kastað á mig einu símtali út af þessu máli. Ég hef ekki einu sinni fengið svigrúm til að ræða þetta mál og útskýra það fyrir þeim en ég hef ekki fengið tækifæri til þess að þeirra frumkvæði,“ segir Sigríður.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×