Leikjavísir

Fifa 18: Negla Jóa B og Gylfa en erfitt að þekkja aðra

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Hannes Halldórsson, markmaður landsliðsins er í miðjunni.
Hannes Halldórsson, markmaður landsliðsins er í miðjunni.
Það styttist óðum í að knattspyrnuleikurinn ofurvinsæli FIFA 18 komi út. Íslenska karlalandsliðið er með í leiknum og hafa skeleggir notendur Youtube skoðað hvernig leikmenn íslenska landsliðsins líta út í leiknum.

Youtube-rásin „FIFA All Stars" nældi sér í eintak af leiknum í gær og hefur hlaðið upp myndbandi þar sem sjá má hvernig flestir leikmenn íslenska landsliðsins líta út í tölvuleikjaformi.

Sjá einnig: Margir eins og klipptir úr hryllingsmynd

Óhætt er að segja að Jóhann Berg Guðmundsson og Gylfi Sigurðsson, fulltrúar íslenska landsliðsins í ensku úrvalsdeildinni séu afar líkir sjálfum sér.

Erfitt er þó að segja það sama um aðra leikmenn landsliðsins sem væru sumir hverjir óþekkjanlegir ef ekki væri fyrir nöfnin aftan á búningunum.

Yfirferðina má sjá hér að neðan.


Tengdar fréttir

Ísland með í FIFA 18

Samningar hafa náðst á milli EA SPORTS™ og KSÍ um að íslenska karlalandsliðið verði með í FIFA 18 sem er einn vinsælasti tölvuleikur í heimi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá KSÍ.

Persónuleg sambönd Guðna komu Íslandi í FIFA 18

Ekki var útlit fyrir að íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu yrði með í tölvuleiknum vinsæla FIFA 18. Persónuleg sambönd Guðna Bergssonar, formanns KSÍ, á norðurlöndunum komu málinu á hreyfingu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×