Innlent

Einn fluttur á sjúkrahús eftir umferðarslys á Suðurlandsbraut

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Ljóst er að töluvert tjón er á bílunum.
Ljóst er að töluvert tjón er á bílunum. Vísir/Eyþór
Umferðaróhapp varð á gatnamótum Suðurlandsbrautar og Faxafens rétt fyrir klukkan hálf sjö í kvöld þegar tveir bílar skullu saman. 

Mikill viðbúnaður var á vettvangi en samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um meðvitundarlausan einstakling. Hann var kominn til meðvitundar þegar viðbragðsaðilar komu á vettvang en var sendur á slysadeild Landspítala til frekari aðhlynningar.

Fréttin hefur verið uppfærð.

Vísir



Fleiri fréttir

Sjá meira


×