Lífið

Símahrekkur Brennslunnar: Vissu ekkert hvor hafði hringt

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Klassískt grín.
Klassískt grín.
Þegar kemur að símahrekkjum er það tímalaust stef að hringja í tvo aðila og tengja þá sama þannig að báðir haldi að hinn hafi verið að hringja.

Það er nákvæmlega það sem þeir brennslufélagar Rikki G og Hjörvar Hafliðason gerðu í morgun þegar þeir spiluðu sprenghlægilegan símahrekk.

Þar voru asískur veitingastaður og hamborgarastaður tengdir saman og vissu þær sem svöruðu ekkert hvað var í gangi.

Hrekkurinn er sprenghlegilegur en fyrir áhugasama má einnig benda á að áður en hrekkur er spilaður opnar Rikki G sig um hvernig honum leið þegar einn magnaðasti símahrekkur allra tíma, þar sem hann var fónarlambið, var spilaður fyrir hann.

Hlusta má á símahrekkinn hér fyrir neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×