Innlent

Vilja undirgöng fyrir ríðandi vegfarendur

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Nýi stígurinn er kippkorn frá hesthúsunum.
Nýi stígurinn er kippkorn frá hesthúsunum. vísir/eyþór
 „Göngustígur er hið besta mál en við höfum áhyggjur af malbikuðum hjólastíg,“ segir Þórunn Ansnes, framkvæmdastjóri Sörla í Hafnarfirði sem varað hefur við slysahættu sem gæti skapast vegna hjólastígs sem malbika á fram hjá hesthúsum hestamannafélagins.

Þórunn segir að í sumar hafi verið unnið við gerð stígs meðfram Kaldárselsvegi.

„Samkvæmt aðalskipulagi átti að koma þarna göngustígur en síðan hefur þetta þróast í hjólastíg,“ segir Þórunn sem sendi bæjaryfirvöldum í Hafnarfirði bréf og lýsti miklum áhyggjum Sörlamanna.

Þórunn Ansnes, framkvæmdastjóri Hestamannafélagsins Sörla í Hafnarfirði við nýja göngu- og hjólastíginn við hestahúsabyggðina.vísir/eyþór
Hesthúsin eru ofan við Kaldárselsveg en reiðvegurinn er handan hans. Nýi stígurinn er hins vegar hesthúsmegin. Hestafólk þarf því að fara yfir nýja stíginn til að komast á reiðgötuna.

„Hröð umferð reiðhjólamanna og ríðandi vegfarenda fer illa saman og er ávísun á slys,“ segir í bréfi Þórunnar til bæjarins. Stemma þurfi stigu við hraða hjólreiðamanna við hesthúsabyggðina við Hlíðarþúfur.

„Besta lausn til framtíðar að okkar mati eru undirgöng sem myndu liggja bæði undir reiðhjólastíginn og Kaldárselsveginn.“ Í millitíðinni þurfi lausnir á borð við að hjólreiðastígurinn verði ekki malbikaður við Hlíðarþúfur, að settar verði varúðarmerkingar, að hestamenn hafi forgang og biðskylda verði hjá hjólreiðafólki. Jafnvel að hlið hægi á hjólandi umferð.

Í samtali við Fréttablaðið bendir Þórunn á að fólk á reiðhjólum sé hljóðlaust og oft í skærum litum.

„Það birtist kannski skyndilega og þá fælast hestar og það verða slys. Við erum alls ekkert á móti þessu en viljum að þetta sé gert eins öruggt og hægt er. Þá þarf að gera ráðstafanir svo þessi umferð fari saman; að hægja á hjólaumferðinni eða þá að sleppa því að malbika stíginn. Það eru alls konar aðferðir til. Núna eru þrjár leiðir frá hesthúshverfinu yfir á reiðgötuna en það væri í sjálfu sér nóg að hafa bara eina örugga leið og það sem við vildum helst er að gerð yrðu undirgöng.“ 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×