Lífið

Foo Fighters á rúntinum með James Corden: Harry prins sló eitt sinn trommarann

Stefán Árni Pálsson skrifar
Klikkaður rúntur.
Klikkaður rúntur.
Bandaríska rokksveitin Foo Fighters fór á rúntinn með Bretanum James Corden í vikunni og voru alls sex meðlimir með kappanum í bílnum.

Saman tók hópurinn frægustu lög sveitarinnar en hún kom meðal annars fram á tónlistarhátíðinni Secret Solstice hér á landi fyrr í sumar.

Taylor Hawkins, trommari Foo Fighters, sagði frá skemmtilegu atviki þegar Harry prins gaf honum kinnhest í samtali við veðmiðilinn BBC í vikunni.

Harry er mikill aðdáandi og eitt sinn sló hann Hawkins í andlitið til að vekja hann almennilega fyrir tónleika.  Hér að neðan má sjá þennan skemmtilega rúnt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×