Menning

Fagnar því að sem flestir styðji við menninguna

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
"Hún Íris ber ábyrgð á þessu öllu. Ég hlýði henni og treysti,“ segir Sigurður.
"Hún Íris ber ábyrgð á þessu öllu. Ég hlýði henni og treysti,“ segir Sigurður. Vísir/Hanna
Sýning á verkum Sigurðar Guðmundssonar myndlistarmanns verður opnuð í höfuðstöðvum Arion banka í Borgartúni 19 klukkan 13.30 á morgun, laugardag. Þar eru ljósmyndaverk, skúlptúrar, grafíkverk og textaverk sem spanna allan feril Sigurðar, frá fyrstu sýningu hans árið 1969 til dagsins í dag. 

„Sýningin teygir sig milli hæða í Arion banka. Á henni er samansafn af verkum sem eru hér á landi í safnaeign og einkaeign. Hún Íris Stefánsdóttir sem sér um upphenginguna hefur grafið ýmislegt upp og svo kemur hún þessu vel fyrir. Það er hún sem ber ábyrgð á þessu öllu. Ég hlýði henni og treysti,“ segir Sigurður sem ætlar að verða viðstaddur sýningaropnunina á morgun. Þar verður fyrirlestur um verkin hans sem Gunnar Árnason listheimspekingur heldur. „Ég verð að hlusta á hann,“ segir Sigurður. „Það er það minnsta sem ég get gert.“





Ein myndanna á sýningunni.
Sigurður býr í Kína en kveðst hafa átt erindi til Svíþjóðar og Hollands. „Ég reyni alltaf að koma til Íslands þegar ég er í Evrópu, það var alveg sérstaklega gott núna, ég fór austur á Djúpavog og var þar í paradísarveðri,“ segir hann. „Svo finnst mér veðrið í borginni núna líka skemmtilegt, sæt rigning og fín. Annars er ég ekki mikið fyrir það sem kemur að ofan. Förum ekki nánar út í það.“

Hann segir þetta vera í fyrsta skipti sem hann sýni innan veggja fjármálastofnunar. Vill ekki ræða mikið um þau tímamót en segir. „Auðvitað hlýt ég að fagna því, eins og allir, að sem flestir styðji við menninguna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×