Glamour

Nýtt og lífrænt á markaðinn

Myndir: Inika Ísland
Inika Organics er nýtt snyrtivörumerki sem loksins er komið hingað til landsins. Inika er ástralskt, og býður einungis upp á lífrænar snyrtivörur.

Snyrtivörurnar eru ekki prófaðar á dýrum og eru lausar við öll aukaefni. Inika er kærkomin viðbót í snyrtibuddu þeirra sem hafa viðkvæma húð eða vilja einfaldlega forðast öll aukaefni. Glamour kíkti í kynningarpartý Inika sem haldið var á Happ í Reykjavík.

Við fögnum þessari viðbót í snyrtivöruflóru landsins! 






×