Innlent

Framsóknarmenn í Kópavogi skora á Willum

Anton Egilsson skrifar
Willum Þór Þórsson þjálfar KR í Pepsi deild karla.
Willum Þór Þórsson þjálfar KR í Pepsi deild karla. Vísir/Eyþór
Framsóknarmenn í Kópavogi hafa skorað á Willum Þór Þórsson að gefa kost á sér í 1. sæti á lista Framsóknarflokksins í kjördæminu fyrir komandi kosningar. Ályktun þess efnis var samþykkt samhljóða á fundi Framsóknarfélaganna í Kópavogi í morgun.

„Fundur framsóknarfélaganna í Kópavogi haldinn 23. september 2017 skorar á Willum Þór Þórsson að gefa kost á sér til að vera í 1. sæti á lista Framsóknarflokksins í kjördæminu í komandi kosningum til Alþingis," segir í tilkynningu frá Framsóknarmönnum í Kópavogi.

Willum var alþingismaður Framsóknarflokksins frá 2013-2016 en komst ekki inn á þing eftir síðustu kosningar. Willum var í öðru sæti í suðvesturkjördæmi fyrir Framsóknarflokkinn en þar náðu Framsóknarmenn aðeins einum manni inn. Hann starfar nú sem þjálfari Knattspyrnufélags Reykjavíkur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×