Enski boltinn

Birkir allan tímann á varamannabekknum í sigri Villa

Dagur Lárusson skrifar
Úr leiknum í kvöld
Úr leiknum í kvöld Vísir/getty
Birkir Bjarnason sat allan tímann á varamannabekk Aston Villa í sigri liðsins gegn Nottingham Forrest í dag.

Það var Albert Adomah sem að koma heimamönnum yfir á 15. mínútu og þannig var staðan í hálfleik.

Gestirnir mættu tvíelfdir til leiks í seinni hálfleik og jöfnuðu metin á 52. mínútu en þar var að verki Daryl Murphy.

Heimamenn fengu aukaspyrnu á aðeins átta mínútum seinna og var það Conor Hourihane sem að steig upp og skoraði beint úr henni og tryggði um leið liði sínu stigin þrjú.

Eftir leikinn situr Aston Villa í 10. sæti með 13 stig á meðan að Nottingham Forrest er í 12.sæti með 12 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×