Fótbolti

Ólafur Ingi meðal áhugaverðustu manna Helsingborg

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Ólafur Ingi í leik með belgíska liðinu Zulte.
Ólafur Ingi í leik með belgíska liðinu Zulte. vísir/
Ólafur Ingi Skúlason er einn af áhugaverðustu leikmönnum sem spilað hafa fyrir Helsingborg í Svíþjóð.

Í tilefni 150 ára afmæli dagblaðsins HD tók Tomas Nilsson blaðamaður saman 11 manna byrjunarlið yfir áhugaverðustu leikmenn sem spilað hafa fyrir Helsingborg IF.

Ólafur Ingi spilaði fyrir félagið á árunum 2007-09 og komst hann á blað hjá Nilsson. Með honum í liðinu er Erik Edman, einn besti varnarmaður Svía frá upphafi.

Alfreð Finnbogason er á varamannabekknum hjá Nilsson, en hann var á láni hjá félaginu árið 2012.

Áður talaði fréttin um að þetta væri samantekt fallegustu manna, því orðabók þýðir fyrirsögn hennar sem sætasta byrjunarliðið.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×