Innlent

Segir stöðugt verið að henda út óæskilegu fólki og kveikja elda

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segir að helsta markmið ráðandi afla innan Framsóknar hafi verið að koma sér frá.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segir að helsta markmið ráðandi afla innan Framsóknar hafi verið að koma sér frá. Vísir/Auðunn Níelsson
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, fyrrum forsætisráðherra Íslands og þingmaður Framsóknarflokksins sagði að sér hugnaðist ekki að vera í flokki sem hefði það eitt að markmiði að bola sér í burtu. Þetta segir Sigmundur í beinni útsendingu í kvöldfréttum Stöðvar 2. 

„Þetta er búið að eiga sér töluverðan aðdraganda,“ segir Sigmundur um ákvörðun sína að segja skilið við Framsóknarflokkinn. „Ég og fleiri flokksmenn sem eru kannski ekki í náðinni hjá þeim hópi sem hefur endurheimt völd í flokknum höfum verið að vonast til þess að það myndi rætast úr hlutunum. Bíða og vona og sjá. En þess í stað er stöðugt verið að henda út óæskilegu fólki, kveikja elda og viðhalda þessu ástandi og svo sjáum við nú að þegar upp koma þessar kosningar og það er bara staðfest að það er mikilvægasta markmið af öllu hjá þessum hópi að koma mér frá. Mikilvægara heldur en að ná árangri í kosningum.“

Sigmundur Davíð segir að ákvörðun sína um að yfirgefa Framsóknarflokkinn hafi átt sér töluverðan aðdraganda.Visir.is/Auðunn Níelsson
Þegar hann er spurður hvaða fólk innan Framsóknarflokksins hafi viljað hann í burtu segir Sigmundur: „Þetta er að miklu leyti sá hópur sem var ráðandi í flokknum árið 2007, stundum kallað flokkseigendafélag og greinilega lítur á þetta sem sitt megin markmið og þegar aðstæðurnar eru orðnar svona þá auðvitað spyr maður sig til hvers er barist? Hvers vegna á maður stöðugt að vera að biðja stuðningsmenn sína að koma með sér í baráttu til að fá að starfa með fólki sem hefur það að sínu æðsta markmiði að losna við mann.“

Fréttamaður spurði Sigmund út í ummæli Þórunnar Egilsdóttur sem í dag velti fyrir sér hvort hann þyrði hreinlega ekki að taka slaginn um oddvitasætið í Norðaustur kjördæmi. Þá líkti Sigmundur sjálfum sér við hinn margverðlaunaða spretthlaupara Usain Bolt:

„Ég gæti örugglega skorað á Usain Bolt að keppa við mig í spretthlaupi hérna í göngugötunni og þegar hann mætti ekki sagt að hann hefði ekki þorað. Þetta náttúrulega skýrir sig eiginlega sjálft. Þetta er sami þingmaður og fyrir ári síðan lét telja sér trú um að væri með geysilega sterka stöðu í kjördæminu  og ég væri með vonlausa stöðu. Þegar talið var upp úr kjörkössunum fékk hún 13 prósent og ég hef ekki ástæðu til þess að ætla að það hafi orðið mikil breyting á því síðan þá. Þetta er kannski til marks um dómgreind fólks sem telur ástæðu til þess að fara í kosningar, aðrar kosningarnar í röð, með flokkinn í upplausnar-og stríðsástandi.

Sigmundur segist ekki vera, með ákvörðun sinni, að ganga inn í annan flokk heldur stofna sinn eigin.Vísir/Valli
Þegar hann er spurður hvort hann hyggist ganga til liðs við nýstofnaðan Samvinnuflokk Björns Inga Hrafnssonar segist hann ekki vera að „ganga í neinn flokk.“ Hann ætli sér að stofna nýja hreyfingu með fólki sem hefur sömu sýn og hann.  

Spurður hvort Björn Ingi Hrafnsson verði í þessum flokki svarar Sigmundur:  „Ég get hugsað mér að vinna með hverjum sem er til í að vinna hlutina á sama hátt og ég. Það er fjöldi fólks, ólíkir hópar, sem hefur verið að skora á mig,  hvetja mig til þess að  fara í þetta. Jafnvel að skipuleggja. Svoleiðis að ég vona bara að sem flestir þeirra taki þátt í þessu.“


Tengdar fréttir

Þórunn sækist eftir sæti Sigmundar

Þórunn Egilsdóttir þingflokksformaður Framsóknarflokksins tilkynnti í dag að hún hafi ákveðið að sækjast eftir fyrsta sæti á lista flokksins í Norðausturkjördæmi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×