Erlent

Tengdasonurinn gerði það sama og Trump gagnrýndi Hillary fyrir

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Donald Trump með tengdasyninum Jared Kushner.
Donald Trump með tengdasyninum Jared Kushner. Vísir/AFP
Jared Kushner, tengdasonur Donalds Trump og einn helsti ráðgjafi Bandaríkaforseta, notaði eigið tölvupóstfang í störfum sínum fyrir Hvíta húsið. Frá þessu greindi lögmaður Kushner í nótt. Mörgum þykir þetta skjóta skökku við því Trump hamraði á dómgreindarleysi mótframbjóðenda síns, Hillary Clinton, í kosningabaráttunni í fyrra fyrir að hafa gert slíkt hið sama.

Tölvupóstsmál hennar snerist í grunninn um að Clinton, í tíð sinni sem utanríkisráðherra, nýtti sér sitt eigið tölvupóstfang sem hýst var á einkavefþjóni hennar, en ekki tölvupóstfang sem skráð var á vefsvæði bandarísku ríkisstjórnarinnar. Meðferð leyniskjala, sem fundust í póstum hennar er ólögleg á slíkum einkavefþjónum auk þess sem slíkir vefþjónar eru ekki eins öryggir og ríkisvefþjónar.

Sjá einnig: Tengdasonur Trumps sagður miðpunktur í rannsókn FBI vegna afskipta Rússa

Voru tölvupóstar hennar því eitt af leiðarstefjum kosningabaráttu Trumps og ýjaði hann jafnvel að því að hann myndi henda henni í steininn fyrir vikið, yrði hann forseti. Máli Clinton lauk án ákæru.

Nú hefur komið á daginn að Kushner skiptist á tugum tölvupósta við aðra trúnaðarmenn innan Hvíta hússins í gegnum eigið tölvupóstfang. Fram kemur á vef Politco, sem fyrst greindi frá málinu, að tölvupóstarnir hafi verið um allt milli himins og jarðar, t.a.m. fjölmiðlaumfjöllun og skipulagningu viðburða.

Lögmaður Kushners viðurkennir að hann hafi vissulega notað sitt eigið tölvupóstfang í störfum sínum en að hann hafi ekki notað það til að deila neinum trúnaðargögnum.

Sjá einnig: Viðskipti tengdasonar Trump til rannsóknar

„Hr. Kushner sendi og tók við færri en 100 tölvupóstum frá samstarfsmönnum sínum í Hvíta húsinu í gegnum tölvupóstfang sitt frá janúar fram í ágúst,“ segir í yfirlýsingu frá lögmanninum.

Bandarísk lög kveða á um hvernig samskiptum forsetans og annarra trúnaðarmanna hans skuli háttað. Notkun einkatölvupóstfanga getur orðið til þess að erfiðara verður fyrir blaðamenn og óbreytta þingmenn að nálgast opinber gögn að sögn BBC.


Tengdar fréttir

Kushner: Framboð Trump var of óskipulagt til að eiga samráð við Rússa

Tengdasonur Donalds Trump Bandaríkjaforseta útskýrði fyrir hópi lærlinga í Bandaríkjaþingi að forsetaframboð tengdaföður síns hafi verið of glundroðakennt til að það hafi getað staðið í samráði við rússnesk stjórnvöld. Blaðafulltrúi Hvíta hússins segir að forsetinn hafi komið að misvísandi yfirlýsingu sem sonur hans gaf út um umdeildan fund með rússneskum lögmanni.

Trump las fyrir misvísandi yfirlýsingu sonar síns

Bandaríkjaforseti las sjálfur fyrir misvísandi yfirlýsingu sem sonur hans gaf út um umdeildan fund með rússneskum lögmanni. Ráðgjafar forsetans óttast að hann hafi komið sér í bobba að óþörfu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×