Bílar

Honda CR-V öruggasti jepplingurinn

Finnur Thorlacius skrifar
Honda CR-V.
Honda CR-V.
Samkvæmt prófunum Insurance Institute for Highway Safety (IIHS) í Bandaríkjunum er Honda CR-V öruggasti jepplingurinn sem í boði er. Rannsakaðir voru þeir jepplingar sem eru á markaði af árgerðinni 2017. Í næstu sætum á eftir Honda CR-V komu svo í þessari röð jepplingarnir Hyundai Tucson, Kia Sportage, Mazda CX-3, Mazda CX-5, Mitsubishi Outlander, Nissan Qashqai, Subaru Forester og Toyota RAV4.

Við kannanir IIHS eru framkvæmd 5 mismunandi árekstrarpróf og einnig metin öryggiskerfi bílanna við að verjast árekstri. Slík kerfi vara ökumenn við aðsteðjandi hættu og sum þeirra virkja hemlunarkerfi bílanna ef ökumenn bregðast ekki sjálfir við. Í könnun IIHS kemur fram að í aðeins einum af þessum 9 efstu bíla er slíkt kerfi sem hemlar sjálft í staðalbúnaði bílsins, þ.e. í Toyota RAV4, en í hinum er slíkt valbúnaður sem greiða þarf sérstaklega fyrir.

Verð á slíkum búnaði að viðbættu verði á grunnútgáfu hans getur þó breytt stöðu hvers bíls á þessum lista og náði Honda CR-V efsta sætinu þrátt fyrir að greiða þurfi sérstaklega fyrir þann búnað. Hafa skal í huga að miðað er við verð bílanna í Bandaríkjunum, en öðru gæti gilt hér á landi. Nokkra athygli vekur að allir efstu 9 jepplingarnir á lista IIHS eru annaðhvort frá Japan eða S-Kóreu, en enginn bíll frá bandarískum eða þýskum bílaframleiðendum.






×