Innlent

Kynferðisbrot til rannsóknar á Vestfjörðum

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Lögreglan á Vestfjörðum fer með rannsókn málsins.
Lögreglan á Vestfjörðum fer með rannsókn málsins. Vísir/Pjetur
Lögreglunni á Vestfjörðum barst um helgina kæra er varðar meint kynferðisbrot sem talið er að átt hafi sér stað í heimahúsi þar sem gleðskapur fór fram. Lögregla handók meintan geranda í tengslum við rannsókn sína á málinu að því er fram kemur í tilkynningu lögreglu.

Honum hefur verið sleppt lausum þar sem lögregla taldi ekki ástæðu til að halda honum lengur í þágu rannsóknarhagsmuna. Er málið til rannsóknar hjá lögreglu.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×