Viðskipti innlent

Stefán ráðinn forstöðumaður rekstarsviðs STEFs

Birgir Olgeirsson skrifar
Stefán Hilmarsson.
Stefán Hilmarsson. Stef
Stefán Hilmarsson, söngvari í Sálinni hans Jóns míns, hefur verið ráðinn til starfa hjá STEF sem forstöðumaður rekstrarsviðs.

STEF eru samtök tónhöfunda á Íslandi og gætir hagsmuna tónhöfunda og innheimtir höfundarréttargjöld vegna opinbers flutnings tónlistar.

Í tilkynningu frá STEF-I kemur fram að Stefán hefur starfað við tónlist í 30 ár, þar sem hann hefur verið forsprakki vinsælla hljómsveita á borð við Sálina hans Jóns míns og Pláhnetuna, ásamt því að eiga farsælan sólóferil og afkastamikill tónhöfundur.

Í tilkynningunni er hann sagður vel kunnugur gangverki STEFs og þekkja þarfir meðlima samtakanna og innviði íslensks tónlistarlífs. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×