Íslenski boltinn

Sjáðu öll mörkin úr 17. umferð Pepsideildar kvenna │ Myndband

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Það voru 12 mörk skoruð í leikjunum fimm í 17. og næst síðustu umferð Pepsi deildar kvenna sem leikin var um helgina.

Grindavík vann 3-2 sigur á Þór/KA og landsliðskonan Berglind Björg Þorvaldsdóttir tryggði Breiðablik sigur á Stjörnunni með tveimur mörkum, svo baráttan um Íslandsmeistaratitilinn lifir fram í loka umferðina.

Haukar unnu sinn fyrsta sigur í sumar þegar þær sigruðu KR 0-3 í Vesturbænum og FH sigraði Val 2-0 á heimavelli.

ÍBV og Fylkir gerðu markalaust jafntefli á Hásteinsvelli.

Öll mörk umferðarinnar má sjá í spilaranum hér að ofan.


Tengdar fréttir

Markalaust í Eyjum

Einn leikur fór fram í Pepsi-deild kvenna í kvöld er Fylkir sótti ÍBV heim. Hvorugu liðinu tókst að skora í tilþrifalitlum leik.

Haukar með sinn fyrsta sigur í sumar

KR tók á móti Haukum í næst síðustu umferð Pepsi deildar kvenna í dag en fyrir leikinn höfðu Haukar ekki unnið leik í sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×