Íslenski boltinn

Laxdal bræður áfram hjá Stjörnunni

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Jóhann Laxdal í leik með Stjörnunni
Jóhann Laxdal í leik með Stjörnunni Vísir/Stefán
Bræðurnir Daníel og Jóhann Laxdal hafa framlengt samninga sína við Stjörnuna og eru nú bundnir félaginu til 2020.

Báðir hafa þeir leikið allan sinn feril með Stjörnunni, ef undanskildir eru nokkrir mánuðir Jóhanns hjá norska liðinu Ull/Kisa árið 2014.

Jóhann hefur spilað 20 leiki í Pepsi deildinni fyrir Stjörnuna í sumar og skorað úr þeim tvö mörk, en Daníel 17 leiki og ekki enn skorað mark.

Daníel er leikjahæsti leikmaður Stjörnunnar í efstu deild. Hann hefur skorað 13 mörk í 276 leikjum fyrir félagið.

Jóhann hefur skorað 14 mörk í 196 leikjum í deild og bikar.

 






Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×