Lífið

Lupe Fiasco vonar að Ísland bjargi sér frá Trump

Stefán Árni Pálsson skrifar
Lupe Fiasco er mjög þekktur rappari.
Lupe Fiasco er mjög þekktur rappari.
Rapparinn Lupe Fiasco ætlar að drífa sig í burtu frá Bandaríkjunum og koma sér í burtu frá Donald Trump Bandaríkjaforseta.

Það sem gerir málið enn merkilegra er að Fiasco er á leiðinni til Íslands í frí en frá þessu greinir hann á Twitter.

Þar segir hann: „Núna þarf maður að flýja frá forsetanum.“

Hann lætur lag fylgja með færslunni sem sjá má hér að neðan. Það verður fróðlegt að fylgjast með kappanum hér á landi á samfélagsmiðlum.

'Running From President' @trakk Happy Birthday F&L2

A post shared by Lupe Fiasco (@lupefiasco) on






Fleiri fréttir

Sjá meira


×