Viðskipti innlent

Ólafur Eysteinn nýr prófessor við tækni- og verkfræðideild Háskólans HR

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Dr. Ólafur Eysteinn Sigurjónssonl auk doktorsprófi við Ónæmisfræðistofnun Ríkisháskólasjúkrahússins í Osló.
Dr. Ólafur Eysteinn Sigurjónssonl auk doktorsprófi við Ónæmisfræðistofnun Ríkisháskólasjúkrahússins í Osló.
Dr. Ólafur Eysteinn Sigurjónsson hefur fengið framgang í stöðu prófessors við tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá háskólanum. Þar segir að Ólafur hafi verið lektor í heilbrigðisverkfræði við deildina frá 2008 og dósent við sömu deild frá 2014. Hefur hann meðal annars kennt sameinda- og frumulíffræði, vefjaverkfræði, lífaflfræði og lífefnisfræði.

Ólafur hefur verið forstöðumaður rannsókna og nýsköpunar og stofnfrumuvinnslu Blóðbankans frá 2006. Ólafur er stofnandi og annar af eigendum nýsköpunarfyrirtækisins Platome líftækni og gegnir stöðu rannsóknarstjóra við fyrirtækið. Ólafur hefur setið í stjórn Skandinavísku lífstoðefnissamtakanna frá árinu 2013 og verið forseti þeirra frá árinu 2016.

Ólafur lauk doktorsprófi við Ónæmisfræðistofnun Ríkisháskólasjúkrahússins í Osló og við Lífeðlisfræðistofnun læknadeildar Háskólans í Osló, árið 2006. Fyrir ritgerð sína „The Differentiation Potential of Human Somatic Stem Cells,“ hlaut Ólafur gullorðu Haralds Noregskonungs árið 2007. Ólafur lauk M.Sc. gráðu í lífvísindum við Læknadeild Háskóla Íslands árið 2001 og B.Sc. gráðu í sameindalíffræði frá líffræðiskor Háskóla Íslands árið 1998.

Í tilkynningunni segir að markmið rannsóknarhóps Ólafs séu meðal annars rannsóknir á sviði endurmyndunar-læknisfræði (e. regeneratvie medicine) með áherslu á þróun aðferða til ræktunar stofnfruma utan líkama til klínískrar notkunar og hvernig má beita vefjaverkfræði og lífstoðefnum til beinmyndunar frá stofnfrumum. Ólafur stundar einnig rannsóknir á sviði blóðbankafræða með áherslu á að skilja skemmdir sem verða í rauðfrumum og blóðflögum við geymslu þeirra og hver áhrif smithreinsunar eru á slíkar skemmdir.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×