Íslenski boltinn

Pepsi-mörk kvenna: Hélt þetta væri falin myndavél hjá Valskonum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Reyndar landsliðskonur fóru afar illa að ráði sínu er Valur tapaði 2-0 gegn FH. Bæði mörkin voru gjafir frá landsliðskonunum.

„Valur var heitasta liðið fyrir pásu en þarna var algjört andleysi og klaufagangur. Þær voru étnar trekk í trekk. Ekki bara í þessum mörkum. Þetta er agalegt og ég hélt þetta væri falin myndavél,“ sagði Mist Rúnarsdóttir, sérfræðingur Pepsi-markanna, í þætti gærkvöldsins.

Sandra Sigurðardóttir markvörður gaf fyrra markið og Málfríður Erna Sigurðardóttir varnarmaður hið síðara.

Sjá má mörkin og umræðuna um leikinn í þættinum hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×