Íslenski boltinn

Sölvi spilar á Íslandi næsta sumar

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Sölvi í landsleik.
Sölvi í landsleik. vísir/getty
Varnarmaðurinn sterki, Sölvi Geir Ottesen, flytur heim í upphafi næsta árs og ætlar að spila í Pepsi-deildinni næsta sumar.

Þetta staðfestir hinn 33 ára gamli Sölvi í samtali við mbl.is í dag en samningur hans við kínverska félagið Guangzhou rennur út um áramótin.

Sölvi hefur spilað 28 landsleiki fyrir Ísland og hefur víða komið við á sínum ferli. Fyrir utan Kína hefur hann spilað í Svíþjóð, Danmörku, Rússlandi og Tælandi.

FH hefur lengi haft augastað á Sölva og svo mun uppeldisfélag hans, Víkingur, klárlega bera víurnar í hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×