Innlent

Ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Arnar Freyr mætti á Austurvöll haustið 2008 til að mótmæla eftir bankarnir féllu.
Arnar Freyr mætti á Austurvöll haustið 2008 til að mótmæla eftir bankarnir féllu.
Arnar Freyr Karlsson, sem þekktur er fyrir leik sinn í Næturvaktinni, Dagvaktinni og Fangavaktinni, hefur verið ákærður af héraðssaksóknara fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás í nóvember fyrir tveimur árum.

Málið er komið á dagskrá dómstóla en Arnar Freyr segir að um áflog hafi verið að ræða, sem hann hafi ekki hafið auk þess sem hann hafi verið einn gegn sjö.

Arnar Freyr segist í samtali við DV hafa verið á leiðinni heim þegar ráðist var á hann. Ástæðan sé sú að vinur hans hafi skömmu áður, sama kvöld, ráðist á sautján ára stúlku. Sjálfir voru Arnar Freyr og vinur hans 22 ára þegar brotið átti sér stað.

Faðir pilts sem þeir áttu í útistöðum við

Vinur Arnars Freyr er ákærður fyrir tvær líkamsárásir. Annars vegar á veitingastaðnum Moe’s við Jafnasel þar sem honum er gefið að sök að hafa ráðist á mann á fimmtugsaldri, slegið hann ítrekað í höfuðið og andlit með þeim afleiðingum að maðurinn hlaut mar og aðra yfirborðsáverka í andliti og framtönn í efri gómi brotnaði. Arnar Freyr segir vin sinn hafa átt í útistöðum við son mannsins.

Í framhaldinu er vinur Arnars Freys sakaður um að hafa ráðist á stúlkuna á bílastæði fyrir utan Moe’s, slegið hana af miklu afli vinstra megin í kjálkann.

Skömmu eftir atvikið er Arnari Frey gefið að sök að hafa ráðist á manninn við verslun Krónunnar við Jafnasel þannig að hann féll í götuna og slegið hann ítrekað með flösku í höfuðið.

Segist ekki hafa verið forsprakkinn

„Ég var á leið heim þá kemur maðurinn hlaupandi að mér og ræðst á mig. Svo koma fleiri sem voru með honum eða á hans vegum og ráðast á mig líka. Í kjölfarið er ég stunginn þegar búið er að ná mér niður af syni mannsins. Það var ekki ég sem var forsprakkinn af þessu bara svona hafa það á hreinu,“ segir Arnar Freyr við DV.

Maðurinn sem fyrir árásinni varð segist hafa átt einskis von. Hann hafi verið sleginn niður af engri ástæðu á veitingastaðnum. Hann hafi svo brugðist við þegar átti að ráðast á son sinn.

Aðalmeðferð í málinu fer fram í næstu viku. Stúlkan fer tram á 900 þúsund krónur í bætur vegna árásarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×