Annað jafntefli Liverpool

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Sadio Mane.
Sadio Mane. Vísir/Getty
Liverpool gerði 1-1 jafntefli á útivelli gegn Spartak Moskvu í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld.

Fernando skoraði glæsilegt mark beint úr aukaspyrnu á 23. mínútu, en Philippe Coutinho jafnaði fyrir Liverpool á 31. mínútu eftir stoðsendingu frá Sadio Mane.

Liverpool réði lögum og lofum á vellinum í kvöld, en náðu ekki að skora sigurmarkið.

Mane var aftur í liði Liverpool eftir að hafa verið í leikbanni, en Jurgen Klopp stillti upp fjórum framherjum í leiknum, Mane, Coutinho, Roberto Firmino og Mohamed Salah.

Liverpool hefur nú gert jafntefli í fyrstu tveimur leikjum sínum í riðlinum og eru í öðru sæti E-riðils.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira