Viðskipti innlent

Lögmannsstofa Steinars fékk 39 milljónir frá Lindarhvoli

Hörður Ægisson skrifar
Steinar Þór Guðgeirsson, hæstaréttarlögmaður og ráðgjafi Lindarhvols.
Steinar Þór Guðgeirsson, hæstaréttarlögmaður og ráðgjafi Lindarhvols. Vísir/GVA

Eignarhaldsfélagið Lindarhvoll, sem heldur utan um stöðugleikaeignir sem voru framseldar til ríkisins í ársbyrjun 2016, keypti þjónustu af lögmannsstofu Steinars Þórs Guðgeirssonar, hæstaréttarlögmanns og ráðgjafa Lindarhvols, fyrir samtals um 39 milljónir án virðisaukaskatts á síðustu átta mánuðum ársins 2016.



Þetta kemur fram í nýbirtum ársreikningi Lindarhvols. Þar segir að stjórn félagsins hafi gert samning við lögmannsstofuna Íslög, sem er í eigu Steinars Þórs, þann 28. apríl 2016 um að annast „þjónustu vegna umsýslu, fullnustu og sölu, á þeim stöðugleikaeignum sem voru umsjá félagsins“. Samtals nam rekstrarkostnaður Lindarhvols 56,5 milljónum í fyrra.



Steinar Þór, sem var formaður skilanefndar slitabús Kaupþings á árunum 2008 til 2012, hefur meðal annars haft það hlutverk að gæta hagsmuna íslenska ríkisins við söluferli á hlut Kaupþings í Arion banka á undanförnum misserum. Þannig situr Steinar, sem sérstakur eftirlitsmaður fyrir hönd stjórnvalda, alla fundi stjórnar Kaupþings þar sem söluferli bankans er til umræðu. Þá hefur Steinar einnig átt sæti í stjórnum fjölmargra félaga sem voru framseld til Lindarhvols sem hluti af stöðugleikaframlagi gömlu bankanna.



Við upphaf starfsemi Lindarhvols nam bókfært virði stöðugleikaeigna ríflega 162 milljörðum en helmingur þeirra eigna var skuldabréf útgefið af Kaupþingi til íslenska ríkisins. Í greinargerð um starfsemi Lindarhvols, sem fjármála- og efnahagsráðuneytið sendi frá sér í síðustu viku, kom fram að frá framsali stöðugleikaeigna og fram til ágústloka 2017 hafa greiðslur inn á stöðugleikareikning ríkissjóðs, ásamt greiðslum inn á reikninga dótturfélaga, numið samtals um 140 milljörðum. Enn eru umtalsverðar eignir í umsýslu Lindarhvols, að stærstum hluta lánaeignir, en áætlað er að unnt verði að slíta starfsemi félagsins á fyrri hluta næsta árs. 



Fréttin birtist fyrst í Markaðnum, fylgiriti Fréttablaðsins um viðskipti og efnahagsmál. 





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×