Handbolti

Íslendingaslagur í Danmörku

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Vignir Svavarsson í leik með íslenska landsliðinu
Vignir Svavarsson í leik með íslenska landsliðinu vísir/daníel
Århus vann 26-30 sigur á Midtjylland í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta.

Þrír Íslendingar leika með Århus og komust þeir allir á blað í dag.

Sigvaldi Guðjónsson skoraði 3 mörk sem og Ómar Ingi Magnússon og Róbert Gunnarsson skoraði 2.

Tandri Már Konráðsson og Vignir Svarasson mættust þegar lið þeirra, Skjern og Holstebro áttust við.

Skjern valtaði yfir Holstebro, 32-23. Tandri gerði 1 mark fyrir Sjern og Vignir 3 fyrir Holsterbro.

Skjern fer með sigrinum upp fyrir Århus á topp deildarinnar, en bæði lið eru með 8 stig. Holsterbro er í sjötta sæti með 5 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×