Golf

Tiger Woods: Kem kannski aldrei aftur

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Tiger Woods.
Tiger Woods. Vísir/Getty
Tiger Woods hefur unnið fjórtán risatitla á golfferlinum en nú efast hann um að hann muni keppa aftur á golfmóti vegna meiðslanna sem hafa verið að plaga hann í mörg ár.

Woods er ennþá það slæmur að hann efaðist um að geta verið aðstoðarmaður fyrirliða bandaríska liðsins í Forsetabikarnum af því að það væri svo sárt fyrir hann að sitja í golfkerru.  Hann var þó mættur og talaði við blaðamann BBC.

Hinn 41 árs gamli Tiger hefur þurft að fara í fjölmargar aðgerðir á baki á undanförnum árum og hætti nú síðast við keppni á móti í janúar vegna bakvandræða.

„Ég veit ekki hvernig framtíðin lítur út,“ sagði Tiger Woods í viðtalinu við BBC. Hann er byrjaður að slá létt en hefur hefur enga dagsetningu með mögulegri endurkomu sinni. Er kannski möguleiki á að hann keppi aldrei aftur?

„Já örugglega. Það mun taka sinn tíma að komast að því hvað ég get gert og ég er ekki að flýta mér,“ sagði Tiger.

„Ég vissi ekki einu sinni hvort ég gæti verið hér af því að ég gat ekki setið í golfkerru. Hristingur var svo sársaukafullur. Það er ekki lengur þannig sem er frábært,“ sagði Tiger.

„Ég er samt enn að æfa og ég er að verða sterkari. Ég er hinsvegar ekki búinn að æfa golfvöðvana því ég er ekki að gera neinar golfæfingar,“ sagði Tiger.

Tiger fór í síðustu bakaðgerðina sína í apríl síðastliðnum. Hann var síðan tekin í maí fyrir að keyra undir áhrifum lyfja sem hann sagðist hafa verið að taka á meðan hann var að jafna sig eftir bakaðgerðina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×