Enski boltinn

Liðsfélagi Gylfa: Tryggði Everton þrjú stig um síðustu helgi en má ekki spila í kvöld

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Gylfi Þór Sigurðsson fagnar Oumar Niasse í leiknum um síðustu helgi.
Gylfi Þór Sigurðsson fagnar Oumar Niasse í leiknum um síðustu helgi. Vísir/Getty
Gylfi Þór Sigurðsson og félagar spila í Evrópudeildinni í kvöld en bjargvætturinn frá síðustu helgi fær þó ekki að fara í búning.

Everton tapaði 3-0 á móti Atalanta á útivelli í fyrsta leik sínum í riðlakeppni Evrópudeildarinnar en í kvöld kemur Apollon Limassol í heimsókn á Goodison Park.

Það stefndi í fjórða deildartapið í röð um síðustu helgi þegar Everton var 1-0 undir á móti Bournemouth þegar aðeins tíu mínútur voru eftir af leiknum.

Ronaldo Koeman ákvað þá að senda Oumar Niasse inn á sem varmann og það borgaði sig heldur betur. Oumar Niasse skoraði tvö mörk á lokamínútunum og tryggði Everton langþráðan sigur.

Senegalski landsliðsmaðurinn má hinsvegar ekki spila á móti Apollon í kvöld og það er algjörlega Ronald Koeman sjálfum að kenna. BBC segir frá.

Koeman valdi hann nefnilega ekki í Evrópudeildarhópinn sinn og mun Oumar Niasse því ekki getað spilað Evrópuleiki liðsins í vetur.

„Við urðum að taka þessa ákvörðun fyrir löngu síðan. Þegar þessi ákvörðun var tekin var staðan allt önnur en núna,“ sagði Ronald Koeman á blaðamannafundi fyrir leikinn.

Ronald Koeman er líka án fleiri lykilmanna í þessum leik því varnarmennirnir öflugu Phil Jagielka og Michael Keane eru báðir meiddir og á meiðslalistanum eru ennþá miðjumaðurinn Ross Barkley (tognun aftan í læri), varnarmennirnir Ramiro Funes Mori (hné) og Seamus Coleman (fótbrot) og svo framherjinn Yannick Bolasie (hné).

Oumar Niasse kom úr frystikistunni um síðustu helgi.Vísir/Getty



Fleiri fréttir

Sjá meira


×